Einn góður...:DHafrún Lilja Halldórsdóttir.



Í heimsókn sinni á geðveikrahælið spurði einn gesturinn deildarstjórann hvaða aðferð læknarnir beittu til að ákvarða hvort leggja ætti sjúkling inn á hælið eður ei.
"Sko," sagði deildarstjórinn, "við fyllum baðkar af vatni. Svo bjóðum við sjúklingnum teskeið, tebolla eða fötu til að tæma baðkarið."
"Aaa, ég skil," sagði gesturinn, "heilbrigð manneskja mundi þá velja fötuna, þar sem hún er stærri en teskeiðin og tebollinn og auðveldast að tæma baðkarið þannig!!"
"Nei." Sagði deildarstjórinn. "Heilbrigð manneskja mundi taka tappann úr."
"Má bjóða þér herbergi með eða án glugga?"

Var að taka til í póstinum mínum og fann þetta og ákvað að setja þetta hérna inná..Glottandi

                                        Hafrún Lilja...

20. febrúarHafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæhæ..
Váá hvað tíminn líður hratt það er komin 20. febrúar og mér finnst ég ný komin hingað eftir jólafrí.
En ég lofaði víst að blogga aftur eftir árshátíð og ég verð að standa við það. Árshátíðin var á föstudaginn og byrjaði kvöldið á því að Sara og Addý komu til okkar hingað upp á vist og kláruðum við að gera okkur til. Þegar við vorum allar komnar í okkar fínasta og orðnar tilbúnar þá kom Ágúst og náði í Addý og Söru og Vigdís kom á ná í mig og Steinku. Við fórum niðrí einhvern sal þar sam árshátíðin var og allir voru rosa fínir og allt eins og það á að vera. Þegar flestir voru komnir þá byrjaði Logi Bergmann að halda upp í stuðinu þarna og var það rosalega gaman. Svo var byrjað á því að borða það var einhver grænmetisúpa í forrétt og kjúklingur í aðalrétt svo var eftirrétturinn feit súkkulaðikaka og ís. Meðan við borðuðum þá var spiluð mjög róleg og falleg tónlist, þannig að maturinn rann mjög vel ofan í mann. Síðan var bara sungið og tala í smá tíma. Svo var haldið á stað heim eða ekki heim heldur þá fórum við Steinunn uppá við að skipta um föt.
Svo héldum við heim til Vigdísar því að mamma hennar og pabbi voru ekki heima þannig að það var smá hittingur það fyrir ballið.
Þegar klukkan var langt gengin í 11 og allir voru búin að fá far á ballið þá var ekkert annað að  gera en að legja af stað á Flateyri. Þegar þangað var komið þá fórum við niður á höfn og hittum stelpurnar og löbbuðum allar saman upp á ball. Það var ekkert smá gaman á ballinu og held ég að allir hafi skemmt sér mjög vel. Þegar hljómsveitin hætti að spila þá fóru allir á Ísafjörð og fórum við Steinunn bara upp á vist og héldum að við mundum ekkert fara út aftur en svo hringdi hún Salvör í okkur og spurði hvort að við vildum ekki koma út með sér. Við fórum út í einhvern klukkutíma. En þá komumst af því að það var ekkert að gerast í bænum og það var skít kalt þannig að vð fórum bara heim.
Á laugardaginn þá var bara SOFIÐ. En um kvöldið þá fórum við út með Vigdísi og fórum og keyptum okkar að borða og fórum svo heim til hennar að horfa á euróvíson. Þegar hún var búin þá koma Stefanía og Danni hringdi í Vigdísi og við fórum að ná í hann. Þegar við vorum búin af því þá fórum við bara á rúntinn í smá stund. Svo fórum við bara aftur heim til Vigdísar og horðum á Tv. Á sunnudaginn þá gerði ég lítið nema bara heim og svaf horfði á friends og lærði.
Þá held ég að þetta sé bara komið. Þetta var bara mjög góð helgi.
Takk fyrir helgina allir..;*;*

                                                                                             Hafrún Lilja.
P.S. Ég er sennielga að fara heim eftir 10 daga. Því að hún amma mín er að verða 85. ára...BrosandiVona bara að það verði fært þannig að ég komst heim..

14. febrúarHafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæhæ..
Sorry hvað ég langt síðan ég bloggaði en það er vegna þess að ég er ekki búin að geta farið á netið í tölvunni minni í langan tíma. Það er svo sem ekkert mikið búið að vera að gerast upp á síðkastið en samt eitthvað. Ég held að ég sé ekki búin að segja frá því þá fór ég á þorrablót hjá skólanum fyrir 2 og hálfri viku sem var rosa stuð.
Helgina eftir það þá tók ég eina vakt hérna upp á vist. Það var nú lítið mál það var eiginlega enginn heima á vistinni þannig að þetta fór allt saman vel. Helgina eftir  það eða síðustu helgi þá fór ég á Suðureyri til hennar Söru minnar og höfðum við það bara nice. Svo á laugardaginn þá fór ég á rúntinn með henni Vigdísi og fór svo bara snemma heim því að ég var með svo mikinn hausverk. Takk fyrir helgina stelpur..;*;*
Stæstu fréttirnar eru svo að það er árshátíð á næsta föstudag. Það er byrjað á mat sem byrjar kl. 18:30. Veislustjóri er Logi Bergmann og verður það öruglega stuð. Svo er ball á Flateyri, húsið þar opnar kl 23:00. Ég veit ekki allveg hvort að ég fari með rútunni eða hvort að ég fara bara með einhverjum sem fer keyrandi. Það er vonandi að það verði rosalega gaman... Ég hlakka svo til..;) 


Ég er að spá í að segja þetta gott í bili. Blogga næst eftir árshátíð og segji hvernig hún hafi verið.
 
                                                                        Hafrún Lilja.

Hm í handbolta...Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæ!
Þetta blogg mitt á að fjalla um HM. 
Eins og kannski flestir vita þá var leikur Íslands og Danmarkar í gær og fór hann ekki eins og maður vildi að hann færi. Ég sá því miður ekki leikinn því að ég var í Ökuskóla-2 en ég fékk svona fréttir af honum annað slagið. Ég segji nú bara sem betur fer sá ég hann ekki, því að ég væri þá ekki lengur með hár á höfinu og sennilega mundi ég skulda Alla og Önnu nýtt sjónvarp.
En það er ekki annað hægt nema að taka þessu eins og hverjum öðrum hlutnum og segja bara þetta gengur betur næst. En ég meina að vera einu stigi undir og það var skorað á síðustu sek. Þetta er náttúrulega bara grátlegt og var maður liggur við með tárin í augunum. 
Við eigum samt eftir að spila einn leik og er hann á morgunn við Rússa. Vonum bara að Íslendingar eigi góðan leik og þeir vinni Rússana.Ég hef horft á alla leikinni, og fannst mér strákarnir allir standa sér eins og hetjur og ekki annað hægt en að var slotur af sínu liði. Mér finnst persónulega íslensku strákarnir vera bestir og verða það alltaf í mínum augum. Þar með segji ég þetta bara gott og enda þetta blogg bara á því að segja.
                                           ÁFRAM ÍSLAND!!

               Hafrún Lilja sem elskar að horfa á Ísland spila handbolta....:D

17.janúarHafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæhæ..
Ég ætla að koma með eitt blogg hérna því ég hef ekkert að gera..Glottandi
Það er búið að vera fullt að gera hjá mér síðustu daga það er alltaf svo mikið að læra. Svo er ég líka búin að fara í ræktina og svona. Ég var að skila fyrsta og langt frá því síðasta skilaverkefninu í náttúrufræði þau eiga öruglega ekki eftir að vera fá.
Helgin var bara mjög fín hjá mér. Ég fór til Söru á föstudaginn eftir skóla og kom aftur heima á laugardaginn. Addý kom líka og var það bara gaman.  Við gerðum marg skemmtilegt t.d þá fórum við út , við klæddum okkur rosalega vel og fórum í snjóstríð. Svo vorum við uppá hinni götunni á Suðureyri ekki aðalgötuni heldur hinni. Þá kom maður til okkar og bað okkar að hjálpa sér að ýdda bílnum sínum og gerðum við það með glöðu geði. Svo ákvað Addý að fara niður einhverja brekku og renndi sér niður og var allveg að dreppast í rassinum hún meiddi sig eitthvað en ég lét það ekki stoppa mig held og lét mig gossa niður brekkuna á fleigi ferð. Svo enduð um við kvöldið á því að stelpurnar gerðu snjóengla og Addý fór á Ísó. Ég og Sara fórum bara heim í tölvuna smá og fórum svo bara að sofaSaklaus Á laugardaginn vöknuðum við um hádegið og gerði ég náttúrufræði verkefni sem ég átti að skila og fékk ég smá hjálp hjá Söru minni. Svo fórum við í sund, það var bara fínt. Við komum svo bara heim og ég fór á Ísó. Um kvöldið fór ég svo með Vigdísi á rúntinn og fórum heim til hennar og ætluðum að horfa á eitthvað í sjónvarpinu en það var ekkert sem okkur langaði að horfa á. Þannig við fórum aftur á rúntinn í smá og svo bara heim. Sunnudaginn þá gerði ég eiginlega ekkert ég svaf og lærði og svo um kvöldið leigðum við Vigdís okkur dvd og fórum heim til hennar að horfa á hana og svo bara heim að sofa. Því að það var skóli daginn eftir. Þessir helvítis mánudagar er ekki það andskoti skemmtilegt að það sé ábætandi að vera þreytur og fúll..Brosandi
                                                    Ég er að spá í að segja þetta gott í bili..
 
                                                                                  Hafrún Lilja.

11. janúar 2007.Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæhæ.. Glottandi
Ég veit að þetta var heldur langt jólafrí hjá mér en ég hef bara ekki haft tíma og hvað þá nennt að blogga síðan ég kom hingað.
Ég ætla að byrja á að segja frá jólafríinu mínu. Ég reyndi að gera sem alta minnst í jólafríinu. Ég var svo mest í því að suða og biðja mömmu og pabbi að koma út eins og ég gæti fengið að keyra. Eins og þið kannski vitið þá er ég komin með æfingarakstur og finnst mjög gaman að að keyra eins og flestir sem heima voru um jólin tóku eftir.Hlæjandi
Auðvitað hjálpaði ég svo mömmu og pabba að klára að gera allt tilbúið fyrir jólin eins og t.d. að þrífa, skreyta og baka. Svo hjálpaði ég ömmum mínum fyrir jólin að þrífa, skreyta of svona. Ég var líka að vinna í fríinu það var reyndar ekki mikið ég var að bera út jólapóstinn, það var nú bara fínt verð ég að segja.

Jólin mín voru bara mjög góð. Við vörum ekki mörg heima um jólin við vorum bara 7 þar að segja ég , Hlynur, mamma , pabbi, ömmurnar og svo var bróðir mömmu líka hjá okkur hann Beggi. Við borðum hamborgarahrygg og svo möndlugraut á eftir og pabbi fékk möndluna. Þegar var svo búið að borða vaska upp og ganga frá það þá var ekkert eftir nema að settjast niður og fara að taka upp pakkanna. Ég fékk fullt af pökkum t.d. síma, ilmvötn, body lotion, sturtusápu, DVD diska, klippingu, gollu, andlitskrem, trefill og margt margt fleira. Takk takk allir..Koss

Á milli hátíðanna þá gerði ég ekki neitt ég var bara heim í náttbuxunum stundum heilu dagana, og hafði það gott.
Áramótin þá elduðum við kalkún og voru þau bara mjög róleg. En guð minn góður hvað áramótaskaupið var lélegt. (Endilega kommentið um hvað ykkur finnst um það).  Það var 18 ára ball þannig að ég komst ekkert á ball. En mér var alveg sama það var bara fínt að vera heima. Saklaus
Eftir áramótin var ekkert annað að gera en að fara að pakka niður, því að skólinn byrjaði 4 jan. Ég kom á Ísafjörð 3. jan og skipti ég um herbergi á vistinni og er ég bara ein núna sem er fínt ekki það að það sé gott að losna við Steinunni alls ekki heldur þá var ég orðin svo þreyt á því að vera með öðrum í herbergi, því að ég var það líka í allt sumar.
Eftir að ég kom hingað á Ísó þá er ég ekki búin að gera mikið nema að fara í skólann og læra.

Á síðustu helgi þá vorum við Steinunn mest með Vigdísi á rúntinum og svona sem var bara stuð. Takk fyrir helgina Vigdís..Koss

En ég er að spá í að fara að hætta þessu rugli og fara að klára að læra. 


                                                  
     Hafrún Lilja..

Jólafrí..Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Ég ætla að fara í jólafrí því að ég er

komin heim og nenni ekki að eyða

tímanum hérna heima í það að

blogga..

Þannig ég segji bara gleðileg jól og

farsælt komandi ár og hittumst hress

á næsta ári...Glottandi

          

         Hafrún Lilja...

5 dagar...!Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Hæhæ..
Það er ekkert að frétta af því nema að ég er bara á fulllu í prófum.
Á föstudaginn ætlaði ég á mat og ball en það var hætt við ballið en ég fór á matinnn og það var fínt skomm..
Það eru bara 5 dagar þangað til að ég fara heim ég get ekki beðið.. Ég vona að það verði mokað heim svo að mínir æðislegu foreldrar geti komið og náð í mig, því að ég nennii ekki að flúgja suður svo er ég með svo mikið drasl jólagjafir og eitthvað dót þannig að það er bara vesen að fara með flugi. ÉG hlakka svo til jólana að ég er að deyja og líka það bara að komast heim til mömmu og pabba og allra...
Ég verð bara að biðja til Guðs að veðrið verði gott og það verði mokað.. Ég vona það besta.
Ég ætla að segja þetta gott í bili.. Veit ekkert hvenær ég nenni að blogga næst, öruglega ekki fyrr en ég verð komin heim..

                                                                               Hafrún Lilja jólastelpa.

Kúkar í ýmsum myndum..!Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Kúkar í ýmsum myndum..


Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir

Hreinn skítur:
Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum

Eltikúkur:
þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um
þig og fattar að þú þarft að kúka meira

Dauðadrumbur
: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann fyrst niður með blýanti

Loftpressukúkur
: kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa

Þynnkuskita
: kemur eftir fyllerí. Helstu einkenni hans eru bremusför í
skálinni

Maískúkur:
skýrir sig sjálfur

Ohh-ég -vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur
: þú þarft að kúka en situr bara
á dollunni og fretar

Mænustunguskítur:
þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert
viss um að hann er á leiðinni út þversum

Rasskinnableytuþrumari:
fer út á svo miklum hraða að afturendinn á
þér rennbleytis af klósettvanti

Háklassakúkur:
kúkur sem lyktar ekki

Óvæmtur kúkur:
þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir
bara að pruma en... úps sparð

Slórskítur:
kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér, þó þú sért búin að
kúka, fyrr en þú hristir þig vel

Atómsperngja:
þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður í marga
klukkutíma á eftir

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla
skálina (kostur: þarf ekki að skeina)



Long John Silver: svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka -
klippa...


Ég fékk þetta á síðunni hennar Sunnu ég vona að það hafi verið í lagi..Óákveðinn


Það eru bara 10 dagar þangað til að ég fari heim..Hlæjandi

                 
                    
                                                                   Hafrún Lilja...Ullandi

12 DAGAR!!!Hafrún Lilja Halldórsdóttir.

Það eru bara 12 dagar þangað til að ég
 
fer heim..Hlæjandi

Ég get ekki beðið eftir að komast heim

og hitta alla heima ég sakna þeirra svo

mikið..Gráta

Nenni ekki að blogga vildi bara leifa ykkur að vita hvað ég er hlakka mikið til að komast heim ég er að deyja!
 
                                                              Hafrún sem saknar allra..

Aðalvalmynd

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Leikur dagsins